tooltip
Booking Request1:5
PLEASE NOTE THIS IS A REQUEST FORM ONLY.
We will respond to your request by email as soon as possible.
As of now, online booking is not available at Hotel Budir.

Arrival Date:
Number of nights:  
If you want to make a simple enquiry and don't feel like filling out the complete form please mail to: budir@budir.is

Eignarhald og rekstur

Stefna Hótels Búða

Það er megin markmið og stefna félagsins að skapa og reka afburðar sveitahótel á alþjóðlegum mælikvarða.  Hótel sem ber af hvað varðar matargerð, þjónustu, starfsmannaviðmót og stemmningu.
Hótel Búðir skulu vera áfangastaður, ekki viðkomustaður.  Þjónustan skal vera verðlögð samkvæmt gæðum í háum verðflokki og arðsemi hlutafélagsins í samræmi við það.
Hótel Búðir skal vera draumahótel meginþorra þeirra erlendu ferðamanna er til Íslands koma og fyrsta val hvers Íslendings er hugsar til vandaðrar hótelvistar hér heima - staður sem stenst vonir og væntingar hins siglda og kröfuharða gests.

Hótel Búðir á Snæfellsnesi (Snæfellsbæ) er rekið af Össurkletti hf. undir stjórn Helgu Hrund Bjarnardóttur hótelstjóra og leigir reksturinn af einkahlutafélaginu Hótel Búðir (kt. 470900 2370). Hótelreksturinn telur 28 herbergi, matsölustað, fundaraðstöðu og bar. Sem einkarekið hótel leggjum við metnað okkar í að bjóða allt í senn; persónulega þjónustu, dvöl á frábærum stað með aðstöðu og aðföngum í hæsta gæðaflokki árið um kring.

Stjórnarformaður Hótels Búða:

Þormóður Jónsson

Stjórn:

Gunnar Sturluson
Einar Örn Jónsson
Örn Andrésson
Tinna Ólafsdóttir

Endurskoðandi félagsins er Sigurþór Guðmundsson hjá KPMG Íslandi.

Hótel Búðir

Hótelið var endurbyggð árið 2002 með það að markmiði að bjóða einstaka aðstöðu til dvalar á fyrsta flokks sveitahóteli á Íslandi. Með öll nútímaþægindi í boði njóta gestir Búða frábærrar stundar í óviðjafnanlegri nátturuparadís.
"Hótel Búðir er eitt af bestu hótelum heimsins" Condé Nast Traveler

Hótel Búðir hefur hlotið fjölda viðurkenninga bæði í formi almenna umfjallana og formlegra umsagna. Tímarit í ferðaþjónustu, lífsstílstímarit o.fl. hafa gert grein fyrir Hótel Búðum, aðstöðunni, þjónustu og umhverfinu og flokkað staðinn í hóp bestu  og mest spennandi áfangastaða sem völ er á fyrir ferðalanga. Tímaritið Wallpaper, Elle, þýsk og ensk tímarit í ferðaþjónustunni hafa birt greinar þar sem Hótel Búðir og staðurinn er mærður og mælt eindregið með heimsókn á þennan einstaka stað. Þú getur víða fundið jákvæðar tilvitnanir um Búðir á vefnum, m.a. hjá Condé Nast Traveller á concierge.com, i-escape.com, independent.co.uk, tripadvisor.com, icelandweatherreport.com o.fl.

Hótel Búðir – stofnað 1948

Hótelið hefur verið í rekstri og boðið bæði gistingu og mat síðan árið 1948. Nýja hótelið var reist 2002 eftir eldsvoða árið áður. Það telur 28 herbergi á þremur hæðum, vínbar, matsölustað fyrir allt að 80 manns og fundar- og ráðstefnuaðstöðu fyrir 80-100 manns. Hótel Búðir er opið gestum allan ársins hring.


Hótel Búðir, apríl 2009