Matsölustaðurinn á Búðum
„Mekka Íslenskrar matagerðar“
Maturinn á Búðum hefur lengst af verið eitt helsta aðdráttarafl staðarins og er margrómaður fyrir einstaka fiskrétti, villibráð, óviðjafnanlega forrétti og ógleymanlega eftirrétti.

Kvöldverður á Búðum er með því rómantískara sem gestir hótelsins upplifa. Í mögnuðu umhverfi náttúrunnar, með Snæfellsjökul í augsýn – matarveisla og drykkjarföng á heimsmælikvarða, þetta er umgjörðin utan um ógleymanlegt kvöld á Búðum. Það skyldi heldur engan undra þegar einn helsti matgæðingur Íslands sagði að að á Búðum væri Mekka íslenskrar matargerðar.

Pétur Þórðarson kokkur ásamt Þórhallur Andri Jóhannsson og Jóni Sigurðssyni færa
þér lystisemdir matargerðar, ekki aðeins matur á diski, heldur einstök
upplifun sem er órjúfanleg staðnum. Lögð er áhersla á einstaklega
ferskt hráefni í hæsta gæðaflokki, með fisk og villbráð fremst meðal
jafningja.

Með heimilislegum stíl skapar staðurinn traustvekjandi og
notalega stemningu þar sem fyrsta flokks þjónusta starfsfólksins
tryggir frábæra dvöl. Það er skoðun okkar að maturinn á Búðum eigi að
veita þér leið á áður gleymar slóðir og líka að opna þér nýjan heim
fyrir bragðið.
|
Matseðlarnir

Matseðillinn á Búðum breytist fyrirvaralaust og er háður aðföngum hverju sinni og árstíð. Hér fyrir neðan gefur að líta það sem er á seðlinum í dag, en við hvetjum þig til að hafa samband til að fá nánari upplýsingar ef þú er með bókaða dvöl í huga og kvöldverð.
Ef það eru einhverjar sérþarfir vegna matargerðar, séróskir eða aðrar ráðstafanir, vinsamlega hafið samband við okkur í síma 435 6700 og við finnum lausn á málunum.
|
|