tooltip
Booking Request1:5
PLEASE NOTE THIS IS A REQUEST FORM ONLY.
We will respond to your request by email as soon as possible.
As of now, online booking is not available at Hotel Budir.

Arrival Date:
Number of nights:  
If you want to make a simple enquiry and don't feel like filling out the complete form please mail to: budir@budir.is

Brúðkaup á Búðum

Starfsfólk Búða býr yfir viðamikilli reynslu í umsjón og skipulagninu brúðkaupa. Það hafa verið haldin fjölmörg brúðkaup á Búðum undanfarin ár, hvert og eitt sérstakt og hvert smáatriði sérsniðið að kröfum hvers og eins.

Athöfnin

Búðakirkja, sem rúmar u.þ.b. 70 manns, hefur notið ómældra vinsælda hjá brúðhjónum og skal engan undra. Umhverfið óborganlegt, kirkjan bæði stórkostleg og merkileg. Prestar Búðakirkju er séra Guðjón Skarphéðinsson í Staðarsveit og séra Ragnheiður Karitas og hana má ná í síma 436 6920.

Brúðkaupið og veislan

Skreytingar

Við bjóðum að sjá um blómaskreytingar, en gestum er að sjálfsögðu velkomið að koma með sínar eigin hugmyndir að skreytingum eða sjá alfarið um þær sjálfir. Veisluna er hægt að halda í matsal Búða eða í minni sal á annarri hæð (u.þ.b. 40 manns). Búðir sjá um borðbúnað; kerti, þurrkur, dúka, leirtau og mataráhöld.

Matseðill og framreiðsla er í höndum Hótels Búða og er samkvæmt samkomulagi milli Búða og veisluhaldara.

Brúðkaupsmyndir, ljósmyndun

Við erum með tengsl við nokkra fagljósmyndara sem eru reiðubúnir til að sjá um alla ljósmyndun, hvort heldur formlega brúðkaupsljósmynd sem og almennar veisluljósmyndir. Verð er á bilinu 35.000 til 75.000 krónur.

Förðun og hárgreiðsla

Við getum verið gestum innan handar með að útvega förðun og hárgreiðslu. Verð er frá 30.000 krónum.

Aðstaða

Andyri hótelsins, móttakan/lobbyið getur tekið við allt að 200 manns standandi. Það er gjarnan notað undir móttökur og kokteila (fyrir og eftir athöfn) og einnig undir lifandi tónlist og sem dansaðstaða. Verðbil fyrir lifandi tónlist er u.þ.b. 50.000–200.000 kr., diskótek (DJ) er u.þ.b. 30.000–80.000 kr.

Matsalur á fyrstu hæð

80-100 manns í sæti. Formlegur matsalur og einnig undir skemmtan með eða á eftir borðhaldi.

Matsalur á annarri hæð

30–50 manns í sæti. Fyrir móttöku, borðhald og skemmtan; dans og músík.
Önnur aðstaða á annarri hæð. Fyrir 2–10 manns í sæti.

Samtals eru 28 herbergi fyrir tvo á Búðum. 1 svíta, 9 Deluxe gerðir, 10 Standard og 8 herbergi undir súð. Öll herbergin geta síðan verið bókuð fyrir einn gest.
Verðskrá fyrir hótelið í heild er háð árstíð og hve mörg herbergi eru bókuð í senn. Miðað við 10 herbergi eða fleiri er heildarverð samningsatriði.

Fyrir utan hótelið

Veðursæld á Búðum yfir sumarmánuðina er margrómuð. Þó það geti hvesst duglega í Staðarsveit, þá má reikna með yndislegum sumarnóttum á Búðum. Við mælum með veisluhaldi utandyra og þess vegna dansiballi úti á bletti eða jafnvel niðrá bryggju – allt eftir aðstæðum. Það er líka hægt að leigja samkomutjald og koma fyrir við hótelið. Verð er u.þ.b. 50.000 kr.

Matur og vín

Það er okkar kapp að mæta óskum brúðhjóna í öllu m.t.t. matar og drykks. Starfsfólk Búða er þér innan handar með val á kostavíni með mat, í fordrykk og kokteila. Matseðla Búða finnur þú hér, en allar séróskir tökum við fagnandi og leysum eftir bestu getu.
Morgunverðarhlaðborð Búða samanstendur af morgunkorni, sérbökuðu brauði, almennu áleggi, sultutaui, ávöxtum, kaffi, te og ávaxtasafa ásamt fleiru.
Við vonum að þessar upplýsingar skýri utanumhald við brúðkaupsveislur á Búðum og veiti jafnframt innblástur og hugmyndir í skemmtilegt veisluhald sem framundan er.

Með kveðju frá Búðum, starfsfólk hótelsins.