Afþreying og ferðaþjónusta á Snæfellsnesi
Við á Búðum erum reiðubúin til að aðstoða þig með og skipuleggja fyrir þig ýmsa afþreyingu á Snæfellsnesi. Það er af mörgu að taka, skipulagðar ferðir, útsýnisflug með þyrlu, hestaferðir, gönguferðir, sjóferðir, stangveiði, golf, ferðir með rútu eða safari-ferðir í breyttum jeppum. Möguleikarnir eru í raun óendanlegir, allt eftir hugmyndum þínum og væntingum. Leyfðu okkur að aðstoð þig, reynsla og þekking er okkar megin og kapp okkar að upplifun þín sé sem mest og best.

Ævintýrasiglingar frá Snæfellsnesi.
Í ferðunum með Sæferðum getur þú smakkað á hrárri hörpuskel beint úr sjónum, séð fjölbreytt fuglalífið á Breiðafirði, notið stórbrotinnar náttúrunnar og heimsótt kyrrlátu eyjuna Flatey og margt fleira.

Snjósleðaferðir á Snæfellsjökul
Snjósleða- eða snjóbílaferðir á Snæfellsjökul eru skipulagðar frá Arnarstapa.Það eru einnig skíðalyfta að norðanverðu sem er að jafnaði opin bæði sumar sem vetur. Snjofell á Arnarstapa skipuleggur ferðir á jökulinn og er með reglubundnar ferðir um helgar sem og eftir samkomulagi.

Hestaferðir, hestaleiga í Staðarsveit
Á Snæfellsnesi eru nokkrar hestaleigur m.a. á Lýsuhóli. Starfsfólk Hótels Búða getur aðstoðað þig með að finna leigu og ferðatilhögun sem hentar þér. Í "Ferðaupplýsingum" má finna frekari upplýsingar um hestaleigur.

Stangveiði á Snæfellsnesi og nágrenni.
Vatnasvæði Lýsu og Vatnsholtsá (Lýsuvatnakerfið) er nafntogað veiðisvæði stangveiðimanna. Áin Lýsa, Torfavatn, Reyðarvatn, Lýsuvatn, Hóp og Vatnsholtsá tilheyra þessu skemmtilega veiðisvæði. 10 stangir eru í senn á svæðinu og gilda í öll vötn. Veiðitímabilin eru tvö; frá 1. apríl til 30 júní (silungur) og 1. júlí til 20. september (silungur og lax). Áður fyrr voru menn að fá sjóbirting og lax á svæðinu þótt það sé orðið sjaldgæfara í dag. Allt að 19 punda silungur hefur veiðst á sæðinu og laxinn frá hálfu til 4 kílógrömm.
Vatnsholtsá gaf rúmlega 300 laxa árið 1979. Veiði í Hóp er bönnuð.
Golf í nágrenni Hótels Búða.
Fjórir golfvellir eru á Snæfellsnesi. Við Langholt skammt frá Búðum, í Ólafsvík, Suður-Bár nálægt Grundarfirði og í Stykkishólmi.
Langholt er ferðaþjónusta í Staðarsveit rétt áður en komið er á Búðir – á leið út nesið. Í Langholti er Garðavöllur, nettur og þægilegur golfvöllur – 9 holu, par 32.